Ertu heiðarlegur eða heiðarleg...?

Heiðarleiki er kostur sem ég met afar mikils. Það hefur verið mikið í umræðunni eftir allt fjármálahrunið að Íslendingar séu ekki heiðarlegir. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvað veldur en sumir vilja meina að þetta sé vegna þess að við séum afsprengi  glæpavíkinga sem urðu eftir á lítilli eldfjallaeyju á norðurhjara veraldar og séum svona þess vegna. Ekki ætla ég að dæma um það hvort eitthvað sé til í því.

Ef við spyrjum okkur, hvað er heiðarleiki? Er ég heiðarlegur? Hvað þarf maður að gera til að vera heiðarlegur? Að mínu mati er heiðarleiki ákveðin leið í lífinu. Heiðarleiki snýst um það að vera sjálfsgagnrýnin og vera stöðugt að taka þessa gagnrýni til greina. Ég ætla að taka hér tvö stutt dæmi um það hvernig skortur á heiðarleika getur komið út í mjög venjulegum aðstæðum.

Ef við byrjum á því að skoða hlut sem mörgum finnst afskaplega ómerkilegur og skipta litlu máli. Þetta er sá merkilegi hlutur að „ganga eftir göngustígum“. Ef þú horfir á þig inná við og spyrð þig hvort þú gangir alltaf eftir göngustígum eins og þeir eru lagðir. Skiptir kannski ekki gríðarlegu máli en engu að síður er þetta svona smá grunnur af því að vera heiðarlegur. Það er ástæða fyrir því að göngustígurinn var lagður á þennan hátt. Oftar en ekki til að hlífa gróðri eða í öryggisskyni. Hér eru kannski engin lög brotin ef gengið er utan stíga en það er kannski hugsunin hjá okkur sem fær mig til að hugsa. Finnst okkur allt í lagi að gera ekki eins og til er ætlast af okkur? Finnst okkur þá allt í lagi að sveigja aðrar „reglur“ eða „lög“.

Annað dæmi sem vert er að nefna sem er einnig lítilvægilegt en engu að síður mál sem snýr að umferðarlögum. Göngum við yfir gangbraut á rauðu ljósi? Finnst okkur það allt í lagi? Ef við göngum yfir gangbraut á rauðu ljósi þá erum við að brjóta lög. Finnst okkur allt í lagi að brjóta þessi lög? Eða ætlum við að velja okkur lögin til að brjóta? Finnst okkur þá allt í lagi að brjóta önnur lög?

Ég er algjörlega á því að þarna byrjar þetta þ.e í þessari grunn hegðun sem síðan smitar upp í stærri og „mikilvægari“ aðgerðir. Ef við fylgjum ekki lítilvægari lögum og reglum þá hættir okkur til að draga þau stærri niður líka. Það er staðreynd. Reynum að líta í eigin barm og hugsa á hverjum degi „er ég heiðarlegur“, „er ég að fylgja leiðbeiningum og reglum“ þannig munum við sjá nýtt og heiðarlegt Ísland þar sem fólk ber virðingu fyrir lögum og reglum. Og ekki gleyma að oftar en ekki eru lítil augu að fylgjast með okkur og læra af okkur.

Örn Sölvi Halldórsson

Birt í stórborgarblaðinu Feyki á Sauðárkróki í maí 2010.


Hvítþvottur Ingibjargar..

Já og hún ætlar væntanlega að hafna allri ábyrgð á þessu sjálf geri ég ráð fyrir...

Hennar flokkur var með bankamálin í sínum höndum og fjármálaeftirlitið. Ætlar hún virkilega að hafna því að hún eða hennar flokkur hafi nokkuð haft með þetta að gera?

Það lítur allt út fyrir það.....


mbl.is IMF varaði við í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er enn bullandi pólitík í þessu...

Ég get ekki séð annað en pólitík sé álíka mikil í nýja frumvarpinu eins og því gamla. Forsætisráðherra skipar í öll embætti í kring um bankann....það kalla ég pólitík...
mbl.is Seðlabankafrumvarpið úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nú allt í einu leynd í lagi?

Nú er allt í einu bara í stakasta lagi að leyndi hvíli yfir því sem fer á milli AGS og forsætisráðherra. Ef ég man rétt þá þótti bara alveg ótækt að þessi leynd væri í gangi þegar Geir var forsætisráðherra. Nú heyrist ekki múkk í tækifærispólitíkusunum í VG....
mbl.is Segir túlkun Geirs byggja á misskilningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á samfylking ekki að víkja líka?

Hvernig er það nú situr annar stjórnarflokkurinn ennþá. Hvernig er það á ekki að mótmæla þangað til Samfylking axlar ábyrgð líka og fer frá völdum. Samfylking var líka á vaktinni þegar allt hrundi.
mbl.is Mótmæli á Austurvelli í 19. sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanvirðing við geðsjúka..

Þetta er alveg hreint með ólíkindum. Myndu þessir ágætu herrar voga sér að loka á fólk sem er fótbrotið, tognað, bakveikt o.s.frv með fullri virðingu fyrir þeim sem þurfa að eiga við einhver mein. Nei líklega ekki...það er alltaf ráðist að sjúkdómum sem sjást ekki á fólki og menn halda ennþá sýnist mér að hlutirnir reddist bara þar sem það sjái ekki á fólki...Myndi það líðast að sjá fólk fótbrotið koma að lokuðum dyrum og sagt að bíða? Nei ekki sjens...

Það virðist vera þannig í þessu blessaða þjóðfélagi að sumir sjúkdómar eru taldir æðri en aðrir og mér sýnist vera litið á geðsjúkdóma sem léttvæga sem sífellt má skera niður og loka deildum. Menn eru líklega ekki að átta sig á því að sumir geðsjúkdómar eru lífshættulegir janfvel hættulegri en sum krabbamein.....myndu menn loka krabbameinsdeild...Nei alveg örugglega ekki....

Það er allt sem segir að nú þurfi nauðsynlega að huga að geðsjúkum, það eru allar aðstæður í þjóðfélaginu núna sem ýta undir geðsjúkdóma. Fólk er í peningavandræðum, það er mikið skammdegi og ekkert nema neikvæð umræða í öllum fjölmiðlum.

Maður verður bara reiður að sjá svona fréttir....


mbl.is Uppsagnir á geðdeild FSA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjað á röngum enda...

Þarna finnst mér vera byrjað á röngum enda. Ég hefði kosið að byrjað hefði verið á launaháum ríkisforstjórum. Ráðherrar og þingmenn eru ekki með nein súper laun að mínu mati. Er til dæmis eðlilegt að bankastjórar ríkisbankanna séu með hærri laun en Forsætisráðherra? Forsætisráðherra á að vera með hæstu launin í ríkisbatteríinu síðan aðrir ráðherrar. Forstjórar ríkisstofnana eiga síðan að vera þarna neðar.
mbl.is Laun ráðamanna lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því miður enn of hátt..

Mér finnst þetta því miður enn of há laun. Ég get á engan hátt skilið að bankastjóri sem er ríkisstarfsmaður þurfi að vera með hærri laun en forsætisráðherra.....ég get bara ekki skilið það...ég myndi hækka Geir í 1500 þús og lækka banastjórann í milljón. Þetta er jafnvitlaust og starfsmaður á plani sé launahærri en Georg Bjarnfreðarson.....hann er jú með 5 háskólapróf.....
mbl.is Forstjóri Landsbankans lækkar í launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann á afmæli í dag...

Halldór Óli er lítill kátur drengur,

Hugsar mikið um sinn hag,

Fyrir okkur mikill fengur,

Hann á afmæli í dag.

ÖSH

Næsta síða »

Dúddinn

ÖSSI
ÖSSI

Nokkuð hress svona dagsdaglega

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband